2.1.2008 | 02:18
Góð PRESSA
Vil hrósa Stöð 2 fyrir nýju spennuþáttaröðina PRESSU, sem sýnd er á sunnudagskvöldum. Fyrsti þátturinn lofar góðu fyrir framhaldið. Þrátt fyrir 20 ár í bransanum þá hef ég aldrei unnið á dagblaði. Ferilskráin mín er eiginlega bara Víkurfréttir. Veit svo sem ekki hvort fyrsti þátturinn er að gefa rétta mynd af lífinu á blöðunum, en þetta er ágætis afþreying og verður örugglega spenna þegar á líður. Gaman að segja frá því að ég til mig hafa átt lítið myndbrot í fyrsta þætti Pressu. Því brá fyrir í sjónvarpsfréttum í þættinum þar sem kría settist á stein úti á Reykjanesi! (http://www.vf.is/vefTV/48/default.aspx) Svona hefur maður haukfrá augu sem sjá „börnin sín" hvar sem þeim bregður fyrir, en myndirnar voru teknar í júlí 2006.
Bíð sem sagt spenntur eftir næsta þætti PRESSU á Stöð 2.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.